Ungmennafélag Akureyrar vill leggja sitt að mörkum til að efla almenningsíþróttir í bænum og hvetja unga sem aldna til hreyfingar og heilbrigðis. Í þeim tilgangi stendur félagið fyrir þremur götuhlaupum á ári sem eru orðin að föstum punkti í íþróttalífi bæjarins. Langhlauparadeildin hefur svo bætt um betur og heldur nokkur minni hlaup árið um kring.
1. maí hlaup
4 km. og 10 km. með tímatöku. Grunnskólar Akureyrar og nágrennis reyna með sér í skólakeppni þar sem hlutfallsleg þátttaka ræður úrslitum. Almenningshlaup barnanna í bænum, vorhátið eldri hlaupara og gott start fyrir þá sem eru að byrja á sumarprógramminu í útiveru og skokki.
Akureyrarhlaup
Fer fram í júní. 10 km. og hálft maraþon með tímatöku og 5 og 3 km. skemmtiskokk án tímatöku. Vandað hlaup sem stenst kröfur um löglega mælda braut, brautarvörslu og tímatöku. Skemmtileg uppákoma fyrir börnin og kjörið tækifæri fyrir alla bæjarbúa að fá sér góða göngu eða sprett. Viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Gamlárshlaup
Fer fram að morgni gamlársdags. Boðið er upp á 4 km. og 10 km. með tímatöku. Kjörið tækifæri til að brenna af sér jólasteikinni og rýma til fyrir áramótasteikinni.
Vetrarhlaup UFA
Hlaupasyrpa sem samanstendur af sex hlaupum sem hvert og eitt gefa stig í stigakeppni. Hlaupin fara fram einu sinni í mánuði í október, nóvember, desember, janúar, febrúar og mars.









