Veðrið lék við þá hlaupara sem mættu inn í Kjarna á laugardaginn og tóku þátt í öðru víðavangshlaupi haustsins. Börn og fullorðnir sprettu úr spori og er farin að færast spenna í sigakeppni hlaupasyrpunnar. Enn eru tvö hlaup eftir og allt getur gerst. Einnig er rétt að vekja athygli á því að þó að um hlaupasyrpu sé að ræða er ekki nauðsynlegt að mæta í öll hlaupin. Við hvetjum því alla sem hafa gaman af að hlaupa til að mæta upp að Hömrum næsta laugardag og taka þátt í þriðja hlaupinu sem hefst kl. 11:00.
Hér má sjá tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppninni.