• MÍ 11-14 2021
  • MÍ 15-22 ára 2021

    UFA býður upp á frjálsíþróttaæfingar fyrir alla aldurshópa. Við getum bætt við okkur iðkendum í öllum aldursflokkum. Nánari upplýsingar hér.

  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

UFA - Plús er hópur fólks sem langar að prófa að æfa frjálsar, hreyfa sig reglulega og kynnast hressu fólki

Glæsilegur hópur á æfingu
Glæsilegur hópur á æfingu

UFA - Plús er hópur fólks sem langar að prófa að æfa frjálsar, hreyfa sig reglulega og kynnast hressu fólki. Þetta er fólk sem aldrei hefur prófað áður í bland við fólk sem jafnvel æfði hér áður fyrr.

Hugmyndin kom upp eftir ferð hóps foreldra sem fylgdi börnum sínum og öðrum keppendum á Heimsleika ungs fólks í frjálsum í Gautaborg í sumar. Ákveðið var þegar heim kæmi að stofna hóp fyrir konur og karla á aldrinum 30 + sem vilja æfa frjálsar hjá UFA.

Æfingar verða út ágúst á Þórsvellinum/Boganum á þriðjudögum og fimmtudögum kl 19-20. Ef mæting verður góð og áhugi mikill verður vonandi áframhald í vetur.

Stofnuð hefur verið facebook síða fyrir hópinn https://www.facebook.com/groups/1696541237233990/

Endilega mætið á næstu æfingu og takið vini og vandamenn með. Hlökkum til að sjá ykkur.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA