Eyrarskokkarar standa fyrir opinni hlaupaæfingu í Vaðlaheiðargöngunum laugardaginn 12. janúar. Boðið verður upp á rútuferðir frá Glerártorgi að gangnamunanum austan megin kl. 10.50. Hlauparar hita upp Fnjóskadalsmegin og kl. 11.30 verður hlaupið af stað í gegnum göngin sem eru 7,4 km löng. Hver og einn fer á sínum hraða og þeir sem ekki treysta sér til að hlaupa alla leið geta gengið hluta leiðarinnar. Rútuferðir til baka í bæinn verða í boði á 30-45 mín fresti eftir að hlaupinu líkur og meðan á skemmtidagskrá stendur vegna opnunarinnar.