• MÍ 15-22 ára 2021

    UFA býður upp á frjálsíþróttaæfingar fyrir alla aldurshópa. Við getum bætt við okkur iðkendum í öllum aldursflokkum. Nánari upplýsingar hér.

  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Metþátttaka í fyrsta vetrarhlaupinu

Metþátttaka var í fyrsta vetrarhlaupi þessa vetrar sem haldið var í Kjarnaskógi gærkvöldi en rúmlega 50 hlauparar mættu til leiks. Sigurvegari í karlaflokki var Arnar Ólafsson og í kvennaflokki var Rannveig Oddsdóttir fyrst. Annar karl var Gunnar Atli Fríðuson og önnur kona var Anna Berglind Pálmadóttir. Þriðji karl var Hlynur Aðalsteinsson og þriðja kona var Sonja Sif Jóhannsdóttir.

Liðakeppnin ætlar að verða spennandi að vanda. Tólf lið voru skráð til keppni og eru tvö lið jöfn eftir þetta fyrsta hlaup, Svitakirtlarnir og Ofurkvennaliðið og Æskan kemur á hæla þeirra.

Hér má sjá röð hlaupara og stöðuna í stigakeppni einstaklinga og liða eftir fyrsta hlaupið. 

Og hér má lesa meira um vetrarhlaupin og fyrirkomulag þeirra en við hvetjum alla sem vilja halda sér í hlaupaformi í vetur til að taka þátt í þessum skemmtilega viðburði.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA