Þann 23. nóvember síðastliðinn undirrituðu UFA og Íslensk verðbréf styrktarsamning. Samningurinn gildir út árið 2018 og í honum felst að Íslensk verðbréf leggja UFA til alls 1.000.000 krónur og eru þannig fjárhagslegur bakhjarl helstu keppnishlaupa sem UFA stendur fyrir, þ.e. Akureyrarhlaupsins, Gamlárshlaupsins og vetrarhlauparaðar UFA. Samningurinn er UFA afar þýðingarmikill og gerir félaginu kleift að gera áðurnefnd hlaup að enn meiri og stærri hlaupaviðburðum en þau eru nú þegar. UFA hlakkar til samstarfsins við Íslensk verðbréf.
UFA býður upp á frjálsíþróttaæfingar fyrir alla aldurshópa. Við getum bætt við okkur iðkendum í öllum aldursflokkum. Nánari upplýsingar hér.