Góður hópur eldri iðkenda úr UFA og UFA Eyrarskokki fjölmennti á MÍ öldunga í Reykjavík um helgina og sýndi góð tilþrif á hlaupabrautinni sem og í köstum og stökkum. UFA vann öruggan sigur í stigakeppni félagsliða fékk 435 stig en ÍR sem var í öðru sæti var með 93 stig. Alls vann UFA 43 Íslandsmeistaratitla á mótinu og Anna Sofia Rapich átti einnig besta afrek kvenna á mótinu 8,88 sek í 60 m hlaupi í flokki 50-54 ára.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.